153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.

[17:02]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það er kominn tími til þess að við hættum að láta umhverfið og lífríkið líða fyrir gegndarlausa gróðastefnu Sjálfstæðismanna. Það er kominn tími til að stöðva allar leyfisveitingar fyrir nýtt sjókvíaeldi og taka alla löggjöf, reglugerðir og fjármögnun rannsóknareftirlits til gagngerrar skoðunar áður en nokkur ný leyfi verða gefin út. Ef gróðasjónarmiðin fá að ráða för mun sjókvíaeldið eyðileggja firðina okkar sem gegna mikilvægu hlutverki í lífríki sjávar, auk þess sem eldislax sem sleppur úr sjókvíum mun ganga af laxveiðiám okkar dauðum, allt í nafni þess að græða peninga með hraði. Eins og Ríkisendurskoðun hefur bent á er rannsóknum ábótavant sökum þess að Hafrannsóknastofnun skortir fé og allt eftirlit er í molum, enda eru eftirlitsaðilarnir einnig fjársveltir og þá skortir verkfæri til að refsa þeim sem brjóta reglur.

Við skulum hafa það á hreinu að hér er um viljaverk að ræða. Ástandið er afleiðing pólitískrar stefnu. Það er nauðsynlegt að við stöldrum við og förum í gagngera naflaskoðun áður en eitt einasta aukatekið rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi er veitt. Fórnarkostnaðurinn við að taka ekki næstu skref af varúð er einfaldlega of mikill til að við getum bara haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Þessi málaflokkur, rétt eins og sjávarútvegurinn í heild sinni, hefur of lengi verið í höndum flokks sem styður við óhindraða gróðastarfsemi fárra einstaklinga og fyrirtækja sem í staðinn tryggja vænar upphæðir í kosningasjóði. Við verðum að stórefla rannsóknir á sviði fiskeldis og fiskveiða og tryggja alvörueftirlit með þessum auðlindum. Það krefst þess að endalaus niðurskurður Sjálfstæðisflokksins á fjármagni til eftirlitsaðila sé stöðvaður og við setjum umhverfið og lífríkið í fyrsta sæti í stað Mammons.