Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.
Virðulegur forseti. Gjaldtaka af eldinu hefur verið nokkuð til umræðu og hv. þm. Inga Sæland kom inn á það áðan að ekki væri forsvaranlegt að nálgast mál með öðrum hætti en þeim sem t.d. væri gert í Noregi. Þingmenn verða þá að upplýsa hvort vilji þeirra stendur til þess að selja með varanlegum óafturkræfum hætti þau leyfi sem gefin eru út, eins og gert er þar, eða hvort menn vilja nálgast málin út frá því að gera tímabundna samninga; ég held að það sé 12–16 ára tímarammi sem verið er að vinna með. Þetta er algert grundvallaratriði.
Umræðan um gjaldtöku hefur verið alveg furðuleg, ef ég reyni nú að orða það varlega, síðan skýrslan kom út. Það er þannig að á liðnu ári skiluðu eldisfyrirtækin rétt um 800 milljónum í fiskeldisgjaldið, sem er auðlindagjaldið sem þar er innheimt, einhverjum par hundruðum milljóna í umhverfissjóð fiskeldis og síðan aflagjöldum til sveitarfélaga. Þegar útgefin leyfi sem nú þegar er búið að veita verða orðin fullnýtt verður fiskeldisgjaldið rétt um 3 milljarðar á ári miðað við núverandi verð á vörunni. Það er ekki boðlegt að við þingmenn stöndum hér og höldum því fram að það sé engin gjaldtaka af greininni. En ef menn vilja fara hina leiðina og selja leyfin með varanlegum óafturkræfum hætti þá verða menn að segja það. Þetta er algjört grundvallaratriði í umræðunni. Það má eiginlega segja að ef við ætlum að reyna að hafa gagn af þessari skýrslu — sem er ágæt margra hluta vegna og dregur fram það sem bæði eldisfyrirtækin og sveitarfélögin hafa verið að segja árum saman, þ.e. að okkur tókst ekki nógu vel til hér við uppfærslu laganna árið 2019 — þá verðum við að tala um hana út frá staðreyndum.