153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi.

[17:12]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil hér í lokin þakka fyrir góða og yfirgripsmikla umræðu. Hún verður ekki tæmd hér enda munu gefast fleiri tilefni til þess að ræða hana og ræða þessi mál.

Ég vil árétta það vegna orða hv. þingmanns hér í lokin að ég hef ekki vikið mér undan því að fara yfir þessi mál allt frá árinu 2017 þegar hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var sjávarútvegsráðherra og fram til ársins 2021 þegar hæstv. þáverandi sjávarútvegsráðherra, Kristján Þór Júlíusson, gegndi embættinu og tala um hvað gerðist á þessum tíma. Ég hef ekki vikið mér undan því að nefna það af því að þetta er langt tímabil og við eigum að ræða það eins og það leggur sig. En eitt hefur þó ekki verið rætt hér í þessari yfirferð og það er mikilvægi uppbyggingar atvinnugreinar með ábyrgum hætti sem leggur sitt af mörkum til matvælaframleiðslu í heiminum þar sem við höfum einstaka stöðu og einstök tækifæri vegna aðgangs okkar að orku og hreinu vatni til að leggja okkar af mörkum af myndarskap. En til þess að við getum staðið undir nafni sem samfélag sem vill vera í fremstu röð þá þurfum við að gera betur að því er varðar sjálfbærnisjónarmiðin, að því er varðar umhverfissjónarmiðin, að því er varðar verðmæti og efnahagsleg og samfélagsleg sjónarmið og það er meiningin með því að óska eftir þessari skýrslu. Þar munum við þurfa líka í framhaldinu að tala um alla mögulega þætti fiskeldis og lagareldis, hvort sem er þang og þari, þróun sjókvía þar sem áhætta er lágmörkuð, möguleg uppbygging landeldis og möguleg uppbygging úthafseldis. Ég hlakka til, virðulegur forseti, að eiga þetta samtal hér við hv. Alþingi.