fjármögnunarviðskipti með verðbréf.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um fjármögnunarviðskipti með verðbréf. Frumvarpið er á þskj. 863 og er mál nr. 588. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópusambandsins 2015/2365 um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og um endurnotkun.
Helstu efnisatriði frumvarpsins eru eftirfarandi: Í fyrsta lagi skulu þeir sem stunda fjármögnunarviðskipti með verðbréf tilkynna um viðskiptin. Með fjármögnunarviðskiptum með verðbréf er átt við:
1. Endurhverf viðskipti sem fela í sér sölu á verðbréfum og samkomulag um að kaupa þau aftur síðar.
2. Lán á verðbréfi eða hrávöru.
3. Kaup- og endursöluviðskipti eða sölu- og endurkaupaviðskipti.
4. Lán sem er veitt í tengslum við kaup og sölu verðbréfa án þess að lánið sé tryggt með veði í verðbréfum.
Með frumvarpinu er ekki verið að leggja til nýjar efnisreglur um fjármögnunarviðskipti með verðbréf eða kveða á um hömlur á slík viðskipti. Eingöngu er kveðið á um tilkynningarskyldu vegna þeirra til að auka gagnsæi á markaði.
Í fjármálaáfallinu árið 2008 kom í ljós að bæði eftirlitsaðilar og fjárfestar höfðu ekki aðgang að fullnægjandi upplýsingum um þessi viðskipti. Þessi skortur á upplýsingum kom í veg fyrir að hægt væri að meta og hafa fullnægjandi eftirlit með áhættu og umfangi tengsla milli aðila. Með frumvarpinu er því verið að bregðast við þessum vanköntum með aukinni upplýsingagjöf og þar með gagnsæi á markaði.
Í öðru lagi er í frumvarpinu kveðið á um nýjan skráningarskyldan aðila, svokallaða viðskiptaskrá, sem tekur á móti þessum tilkynningum um fjármögnunarviðskipti með verðbréf og birtir á aðgengilegan hátt upplýsingar um stöður sundurliðaðar eftir gerð fjármögnunarviðskipta.
Vert er að benda á að þetta nýja fyrirkomulag sem hér er lagt til, þ.e. að fjármögnunarviðskipti með verðbréf skuli tilkynnt og að á móti tilkynningum taki viðskiptaskrá sem svo sér um að birta upplýsingarnar, er sambærilegt því fyrirkomulagi sem gildir hér á landi um afleiðuviðskipti samkvæmt lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, nr. 15/2018. Í þeim lögum er kveðið á um tilkynningarskyldu vegna afleiðuviðskipta og þar tekur einnig viðskiptaskrá á móti upplýsingunum og birtir þær.
Í þriðja lagi er kveðið á um að rekstraraðilar sjóða um sameiginlega fjárfestingu skuli veita upplýsingar um fjármögnunarviðskipti sín með verðbréf og heildarskiptasamninga við upphaf viðskipta og í reglulegri upplýsingagjöf til fjárfesta. Með þessu er gagnsæi einnig aukið og fjárfestavernd þeirra sem fjárfesta í slíkum sjóðum.
Í fjórða lagi er kveðið á um lágmarksgagnsæiskröfur þegar fjármálagerningur sem lagður hefur verið fram sem trygging vegna viðskipta er endurnotaður. Gerð er krafa um fyrirframsamþykki þess sem lagði fram fjármálagerninginn fyrir endurnotkun hans. Með endurnotkun á fjármálagerningi er hér átt við notkun mótaðila á fjármálagerningi sem hann tekur við samkvæmt veðtryggingarfyrirkomulagi. Endurnotkun getur falið í sér framsal eignarréttar eða notkunarrétt samkvæmt 5. gr. laga um fjárhagslegar tryggingaráðstafanir, nr. 46/2005.
Þetta eru þessi helstu fjögur atriði sem fjallað er um í frumvarpinu.
Hvað mat á áhrifum þess varðar þá eru helstu áhrifin talin vera þau að stjórnvöld og eftirlitsaðilar sem og fjárfestar geti metið betur og haft eftirlit með áhættu sem fjármögnunarviðskipti með verðbréf, og endurnotkun á veði sömuleiðis, geta haft í för með sér. Það þarf að vera hægt að meta hvaða áhættu þetta getur haft í för með sér.
Reglurnar munu hafa áhrif á þá sem stunda fjármögnunarviðskipti með verðbréf á þann hátt að þeir munu þurfa að tilkynna um slík viðskipti. Áhrifin verða minnst fyrir smærri aðila því ef viðskiptin eru á milli fjárhagslegs mótaðila, svo sem viðskiptabanka, og aðila sem nær ekki þeim stærðarmörkum að teljast meðalstórt félag skal fjárhagslegi mótaðilinn sjá um tilkynningu fyrir báða aðila. Eins og áður sagði er gerð krafa um að rekstrarfélög sjóða um sameiginlega fjárfestingu veiti upplýsingar um fjármögnunarviðskipti sín með verðbréf og heildarskiptasamninga. Rekstraraðilarnir þurfa því að bæta við upplýsingum um þessi viðskipti í staðlaða upplýsingagjöf sína.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands mun sinna eftirliti með því að aðilar hér á landi fari að kröfum frumvarpsins um tilkynningar um fjármögnunarviðskipti með verðbréf til viðskiptaskrár, um endurnotkun á fjármálagerningi og upplýsingagjöf rekstraraðila sjóða um sameiginlega fjárfestingu.
Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin mun sjá um að veita viðskiptaskrám skráningu og sinna eftirliti með þeim. Eftirlitsstofnun EFTA hefur þó aðkomu að eftirliti sem snýr að viðskiptaskrám í EES/EFTA-ríkjum og tekur bindandi ákvarðanir er að þeim beinast. Sambærilegt fyrirkomulag er við lýði vegna eftirlits með lánshæfismatsfyrirtækjum.
Gert er ráð fyrir auknum umsvifum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar lagasetningar en engu að síður er talið að áhrif frumvarpsins rúmist innan núverandi rekstraráætlana eftirlitsins. Áhrif á ríkissjóð verði því engin.
Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.