íþrótta- og æskulýðsstarf.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir framsöguna á þessu frumvarpi, sem er mikilvægt frumvarp, enda sýnir tölfræðin sem birtist í greinargerð með frumvarpinu að því miður er allt of mikið um atvik sem geta haft mjög alvarlegar afleiðingar á þau börn sem verða fyrir þeim. Það er sérstaklega sorglegt að sjá hina miklu aukningu í kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem sést á milli áranna 2020 og 2021. En mig langaði í fyrra andsvarinu að spyrja hæstv. ráðherra út í breytingarnar á íþróttalögum sem ráðherra fjallaði um í lokin, þ.e. að eiga rétt á því að fá upplýsingar úr sakaskrá um þá sem sinna íþróttastarfi barna og ungmenna. Mig langaði bara að heyra hjá hæstv. ráðherra hvort sams konar heimild sé þegar í lögum varðandi þá sem sinna æskulýðsstarfi fyrir börn og unglinga, sem sagt ekki íþróttastarfi heldur æskulýðsstarfi. Því miður höfum við sögur bæði héðan og erlendis frá um mikið af kynbundinni áreitni þar.