íþrótta- og æskulýðsstarf.
Virðulegi forseti. Já, ég vil bara taka undir með hv. þingmanni að því miður er of mikið um atvik þar sem upp koma mál eins og þau sem þurfa að fara fyrir samskiptaráðgjafa. En sem betur fer er kominn farvegur fyrir þessi mál. Og ekki er ósennilegt, ég hef skynjað það á samtölum mínum við samskiptaráðgjafa, að mögulega séu þarna líka eldri mál sem hafa verið að koma upp og núna er samskiptaráðgjafinn að fara í aukna kynningu þannig að vonandi erum við að ná þessum málum sem næst samtímanum og þar með dragi líka úr því að slík mál komi upp. En hv. þingmaður spyr hvort sambærilegt ákvæði sé í æskulýðslögum. Já, mér er kunnugt um að það er sambærilegt ákvæði í æskulýðslögum. Ég ætla þó ekki að fullyrða að það sé nákvæmlega eins orðað en það er sambærilegt ákvæði í æskulýðslögum. Ég ítreka það að samskiptaráðgjafinn er bæði fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf þannig að allir geta beint þangað málum, hvort sem um er að ræða atvik sem koma upp í íþrótta- eða æskulýðsstarfi.