Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:26]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir skýrslu um framkvæmd EES-samningsins sem lögð er fram í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála. Skýrslan er mikilvægur liður í upplýsingamiðlun til þingsins og lýðræðislegu eftirliti þess með framkvæmd samningsins. Umræðan sem við eigum í dag er kærkomið tækifæri til að skiptast á skoðunum um þennan mikilvægasta viðskiptasamning þjóðarinnar, samning sem hefur stutt við velmegun og lífskjör í landinu í hartnær 30 ár en um þriðjungur núlifandi Íslendinga er fæddur eftir gildistöku samningsins og enn fleiri muna ekki aðra tíma.

Í þeim úttektum hafa reglulega verið gerðar á EES-samstarfinu hefur niðurstaðan ávallt verið afdráttarlaus: Íslenskt þjóðfélag hefur tekið stakkaskiptum við aðild að EES-samningnum og ávinningurinn er ótvíræður. En sá ávinningur er oft ekki auðmældur. Aukning í landsframleiðslu og ráðstöfunartekjum einstaklinga samhliða stórauknum útflutningi og utanríkisverslun almennt er vissulega skýr mælikvarði. Um 60% af útflutningi Íslands á vöru og þjónustu er til EES, sem er 450 milljóna manna heimamarkaður, markaður þar sem okkar fyrirtæki geta keppt á jöfnum forsendum. En EES-samningurinn hefur líka fært okkur mikilvægar umbætur á laga- og samkeppnisumhverfi, bæði fyrir neytendur og atvinnulífið, sem við teljum sjálfsagðar núorðið, að ónefndum fjölmörgum tækifærum á sviði mennta, vísinda, rannsókna og nýsköpunar. Þessa þætti er oft erfiðara að meta til fjár. Margt sem við teljum orðið sjálfsagt og er samofið daglegu lífi okkar er í reynd grundvallað á þeim réttindum sem við njótum samkvæmt EES-samningnum. Það á t.d. við um réttinn til atvinnu, náms og búsetu hvar sem er innan EES. Meira en 40.000 Íslendingar hafa t.d. tekið þátt í Erasmus. Að Ísland sé hluti af fjármálakerfi innri markaðarins er gæðastimpill fyrir íslensk fyrirtæki í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. EES-samningurinn hefur einnig orðið til þess að fullt frelsi er í loftferðum innan Evrópu og auðveldar ferðalög Íslendinga til annarra landa jafnframt því að auðveldara er að sækja Ísland heim. Loftferðasamningar, m.a. aðild okkar að samningi ESB og Bandaríkjanna og EES-reglur um flugstarfsemi, eru mikilvægur þáttur í rekstri íslenskra flugfélaga. Þessir þættir hafa einnig auðveldað flugfélögum frá öðrum ríkjum að halda úti áætlunarflugi til Íslands. Allt eru þetta dæmi um ávinning af samstarfinu sem hefur víðtækari áhrif en við gerum okkur oft grein fyrir. Væru borgarar eða fulltrúar atvinnulífsins spurðir hvort þeir vildu vera án þessa ávinnings yrðu svörin líklega skýr. Það er ekki síst af þessum sökum sem það er mikilvægt að efna reglulega til almennrar umræðu um EES-samninginn og þýðingu hans fyrir Ísland, en samningurinn er jafnframt í stöðugri þróun og tekur breytingum í takt við þróun innri markaðarins. Jafnvel þótt ávinningurinn sé talinn mikill og ótvíræður er samningurinn ekki án áskorana og krefst stöðugrar athygli.

Virðulegi forseti. Ég nefndi flugstarfsemi og hér er því rétt að víkja nokkrum orðum að máli sem hefur verið í fjölmiðlum nýverið. Það varðar breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir í flugi, hið svokallaða ETS-kerfi. Breytingin er hluti af loftslagsaðgerðum sambandsins sem Ísland hefur tekið þátt í ásamt Noregi. Þessar breytingar geta haft mikil áhrif á samkeppnisstöðu tengiflugvallarins í Keflavík sem aftur getur leitt til þess að það dragi úr tíðni flugsamgangna við landið. Leiðakerfi flugfélaganna á Norður-Atlantshafi hefur þýtt að landið er betur tengt við umheiminn en höfðatalan myndi ein og sér rísa undir. Enginn þarf því að efast um þýðingu flugsamgangna fyrir þjóðarbúið í heild, efnahagslífið og allan almenning. Í fréttum nýverið kom fram að gert væri ráð fyrir flugi til 75 áfangastaða á árinu en um 40% þeirra farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll eru tengifarþegar.

Þetta mál er á forgangslista stjórnvalda vegna hagsmunagæslu innan EES og var strax tekið föstum tökum þegar ljóst var hvaða áhrif það myndi hafa á okkar hagsmuni. Stjórnvöld hafa staðið fyrir samstilltu átaki þar sem sendiráð í Brussel hefur gegnt lykilhlutverki í að koma sjónarmiðum okkar á framfæri en einnig hafa ráðherrar, embættismenn og sendiráð okkar gagnvart aðildarríkjum ESB verið virkjuð og lagt gjörva hönd á plóg. Lagasetningarferli Evrópusambandsins lauk í byrjun desember en eftir er að semja um upptöku gerðanna í EES-samninginn. Í lagasetningarferlinu var komið til móts við Kýpur og Möltu að því er varðar verðjöfnun á sjálfbæru flugvélaeldsneyti og venjulegs eldsneytis og fólst í því ákveðin viðurkenning á sérstöðu eyríkja. Vísbendingar eru um að þessar tilslakanir geti sömuleiðis náð til okkar. Ljóst er þó að þær munu ekki duga til að jafna samkeppnisskilyrði Keflavíkurflugvallar sem tengiflugvallar á Norður-Atlantshafsflugleiðinni, en röskun þeirra getur haft alvarleg áhrif á tíðni flugsamgangna við Ísland. Þess vegna er mikilvægt að við náum árangri í þeim viðræðum sem fram undan eru um upptöku þessara gerða í EES-samninginn. Þar skorumst við að sjálfsögðu ekki undan því að deila byrðum með öðrum Evrópuþjóðum í baráttu gegn loftslagsbreytingum. Við förum sömuleiðis fram á að þeim sé deilt í réttu hlutfalli og ekki séu lagðar óeðlilega þungar byrðar á okkur umfram aðra. Að svo stöddu er það mat okkar að niðurstaðan innan ESB taki ekki nægilegt tillit til þeirra sérstöku aðstæðna sem eru á Íslandi.

Að höfðu samráði við ríkisstjórn hef ég í kjölfarið skipað starfshóp sem mun skoða með hvaða hætti megi taka upp þessa gerð upp í EES-samninginn svo hún samræmist hagsmunum Íslands, jafnframt að kortleggja sviðsmyndir ef það tekst ekki. Það er skýr afstaða íslenskra stjórnvalda að gerðin verður ekki tekin upp í EES-samninginn án þess að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna. Á sama tíma er mikilvægt að það komi fram að Ísland skorast ekki undan því að taka þátt í og styðja við heildarmarkmið þessarar nýju löggjafar til að ná fram loftslagsmarkmiðum. Við þurfum að brúa bilið þar til það er raunhæfur möguleiki að nota sjálfbært flugvélaeldsneyti eða tækniframfarir leiða til þess að losun frá flugi minnki. Áður hafa komið upp erfið mál við upptöku löggjafar ESB í EES-samninginn. Í þeim tilvikum hafa oft fundist ásættanlegar lausnir og ég er sannfærð um að við munum finna lausnir í þessu máli sem öðrum.

Þetta mál og reynslan hefur kennt okkur að framkvæmd EES-samningsins er stöðugt verkefni og í þessu samstarfi erum við Íslendingar okkar eigin gæfu smiðir. Það er á okkar ábyrgð að nýta þau mörgu tækifæri sem felast í EES-samningnum. Að sama skapi skiptir öflug þátttaka og virk hagsmunagæsla höfuðmáli.

Virðulegi forseti. Það er ekki síst á umbrotatímum eins og þeim sem við lifum nú sem samningurinn hefur sannað gildi sitt. Nú blása vindar í alþjóðaviðskiptum sem erfitt er að virða að vettugi. Við erum þjóð sem ávallt hefur talað fyrir frjálsum alþjóðaviðskiptum á samkeppnisgrundvelli því að þá hefur Íslandi farnast best. Við sjáum ríki og ríkjahópa leggja áherslu á aðfangaöryggi og uppbyggingu iðnaðar og annarrar starfsemi heima fyrir sem oft býr til aðstöðumun eða felur í sér lítt dulda verndarhyggju. Hér eftir sem hingað til þarf Ísland að treysta viðskiptasambönd við þau ríki þar sem lýðræði, mannréttindi og réttarríki standa traustum fótum. Þar er markaðurinn sem EES-samningurinn veitir okkur aðgang að ákaflega mikilvægur. Þetta var öllum ljóst þegar við tryggðum okkur aðgang að bóluefni vegna Covid.

EES-samningurinn skipar okkur meðal okkar helstu bandalagsþjóða í viðskiptalegu tilliti. Ég hefði sjálf ekki viljað vera án hans í þeim ólgusjó sem við höfum lifað síðustu árin og ég vil ekki vera án hans þegar við tökumst á við áskoranir framtíðarinnar. Við þurfum því að passa upp á samninginn og hér eftir sem hingað til mun það krefjast náins og uppbyggilegs samstarfs allra samningsaðila, m.a. til að leysa úr þeim málum sem upp koma. Í þessu sambandi hef ég lagt áherslu á að rækta tengsl við forystufólk Evrópusambandsins og aðildarríkja þess. Í október síðastliðnum sótti Maros Sefcovic, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, Ísland heim í mínu boði. Hann lýsti ríkum samstarfsvilja ESB til að standa vörð um samninginn, finna lausnir á þeim vandamálum sem upp koma — og þau koma — og takast á við áskoranir nútímans, þar á meðal í flugmálunum sem áður voru nefnd, og að Ísland og hin EFTA-ríkin innan EES væru meðal nánustu samstarfsríkja sambandsins. Nú er von á forseta framkvæmdastjórnar sambandsins og forseta leiðtogaráðsins hingað til lands vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins og verður það einstakt tækifæri til að styrkja þessi tengsl frekar.

Virðulegur forseti. Að meginstefnu til nær skýrslan sem liggur til grundvallar umræðunni til ársins 2021 og fram á mitt ár 2022, en í skýrslunni er einnig gerð grein fyrir málum sem eru á döfinni innan EES-samstarfsins. Í henni er gefið heildstætt yfirlit um framkvæmd samningsins á því tímabili sem skýrslan tekur til, þar með talið upptöku ESB-gerða í samninginn og innleiðingu þeirra hér á landi. Fram kemur að árangur hafi náðst við að draga úr svonefndum upptökuhalla og innleiðingarhalla. Þetta er mikilvægt til að varðveita einsleitni og jöfn samkeppnisskilyrði á EES-svæðinu. Komið er inn á umbætur í framkvæmd samningsins og hér vil ég nefna að á yfirstandandi þingi hyggst ég leggja fram frumvarp til breytinga á lögum nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, sem ætlað er að tryggja betur að einstaklingar og lögaðilar geti nýtt sér réttindi samningsins. Í því tel ég felast réttarbót. Að auki er gerð grein fyrir rekstri uppbyggingarsjóðs EES. Íslensk stjórnvöld hafa á því sjóðstímabili sem senn er á enda lagt sérstaka áherslu á verkefni á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar, orku- og umhverfismála, samfélagslegra umbóta og jafnréttismála. Hefur stuðningur úr sjóðnum m.a. nýst til samvinnu um jarðhitaverkefni. Rétt er að nefna að nú standa yfir viðræður við ESB um nýtt sjóðstímabil en í tengslum við þær viðræður hafa stjórnvöld sótt á um bættan markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir enda miða framlög til samheldnismarkaða einnig að því markmiði að auka getu viðtökuríkjanna til að styrkja efnahagsleg og viðskiptaleg tengsl á innri markaðnum við EES- og EFTA-ríkin.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB. Þátttaka okkar á yfirstandandi tímabili, sem stendur frá 2021–2027, er sú umfangsmesta til þessa og býður upp á mikil tækifæri, ekki síst vegna þróunar grænna lausna og orkuskipta. Fyrstu merki sýna að þegar hefur náðst góður árangur í að afla stuðnings við íslensk verkefni eða samstarfsverkefni. Síðast en ekki síst er gerð ítarleg grein fyrir hagsmunagæslu Íslands í EES-samstarfinu sem er snar þáttur í starfi sendiráðsins í Brussel en þar starfa nú fulltrúar frá öllum ráðuneytum nema einu. En hagsmunagæslan er ábyrgð sem hvílir á okkur öllum. Í júní síðastliðnum samþykkti ríkisstjórnin nýjan forgangslista vegna hagsmunagæslunnar. Málasvið umhverfis-, orku- og loftslagsmála eru þar fyrirferðarmikil.

Hæstv. forseti. Í stjórnarsáttmálanum er lögð áhersla á framkvæmd og þróun EES-samningsins þannig að hagsmunir og fullveldi Íslands í samstarfinu og viðskiptum við önnur ríki sé tryggt. Þetta er sameiginlegt verkefni okkar, stjórnvalda og Alþingis, og byggist á samstarfi og trausti. Í lýðræðissamfélagi er eðlilegt að ekki sé allir sammála um slíkt samstarf en það sýnir styrk og veitir stjórnvöldum eðlilegt aðhald. Ég tel þó að það ríki almenn sátt um EES-samstarfið sem okkar leið í Evrópusamvinnu og þann mikilvæga ávinning sem samningurinn færir íslensku samfélagi.