Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:38]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna um þennan mikilvæga milliríkjasamning okkar, þennan mikilvægasta alþjóðasamning sem við höfum gerst síðari ár. Þessi samningur var eitt mikilvægasta skrefið inn í farsælt alþjóðasamstarf. Mér fannst ég greina það á ræðu hæstv. ráðherra að hún styðji samninginn eindregið. Ég fagna því að þessir tónar voru skýrir af því að það verður að segjast eins og er að þeir tónar sem koma m.a. innan úr Sjálfstæðisflokknum, Miðflokknum, þessu íhaldsmengi sem finnst í samfélaginu — að það er verið svolítið að grafa undan EES-samningnum. Þess vegna finnst mér mikilvægt að ráðherrar séu mjög skýrir með það að ekki bara viðhalda honum heldur efla hann. Ég vil hvetja ráðherra til dáða en líka að tala mjög skýrt innan síns flokks upp á þetta að gera af því að við höfum heyrt hér þingmenn og líka varaþingmenn flokksins koma hingað inn og delera svolítið um samninginn, að það þurfi að taka hann upp, og ýja að því að þetta sé fullveldisafsal. Reyndar er mín skoðun sú að skrefið inn í ESB væri minna en skrefið inn í EES, en það er önnur saga.

Það er falleg upptalning á því hvað það er mikilvægt að hafa verið þátttakandi í EES-samstarfinu; við erum að tala um menntakerfið, við erum að tala um samkeppnina, reyndar bara samkeppni sem fellur undir EES-samninginn, varðandi allt sem er fyrir utan er mikil fákeppni. Þetta er frekar langur listi en góðu listi og dregur fram mikilvægi samningsins. Þess vegna spyr ég, af því að hæstv. ráðherra segir að ríkisstjórnin hafi síðan ályktað um að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan Evrópusambandsins, eftir að hafa talið upp alla kostina við EES-samninginn: (Forseti hringir.) Hvaða hætta er fólgin í því að treysta þjóðinni fyrir því að taka ákvörðun um næstu skref þegar hagsmunir okkar (Forseti hringir.) að EES-samstarfinu hafa verið ótvíræðir? Eigum við þá ekki að treysta þjóðinni (Forseti hringir.) til að taka næstu skref í þessu máli?