framkvæmd EES-samningsins.
Herra forseti. Það fer eftir því hvernig maður snýr þessari spurningu sem hv. þingmaður setur þannig upp af því að EES-samningurinn sé svo mikilvægur, sterkur og frábær þá eigum við að ganga í Evrópusambandið. Ég segi einmitt: Af því að EES-samningurinn er skýr, sterkur og frábær fyrir íslenskt samfélag þá eigum við ekki að ganga í Evrópusambandið vegna þess að samningurinn tryggir okkar hagsmuni með gríðarlega öflugum hætti og neikvæðu hliðar þess að ganga í Evrópusambandið, sem eru auðvitað miklu fleiri en EES-samningurinn fangar, vegi einfaldlega þyngra en þær jákvæðu.
Við erum í mjög nánu samstarfi við Evrópusambandið. Við njótum mjög góðs af EES-samningnum. Honum þarf að sinna, upp á hann þarf að passa, hann þarf að þróast og um hann þarf að ríkja samstaða bæði hér innan lands en líka í Evrópugangverkinu, að það sé stuðningur við það að EES-samningurinn sé mikilvæg viðbót og sé góð leið til að vinna náið með þeim löndum sem hann hafa. Að því leytinu til hef ég haft þá skoðun, og hef þá skoðun, það er einfaldlega mín sannfæring og míns flokks og er sannfæring þeirra þriggja flokka sem mynda ríkisstjórn og um það er þá kosið eins og önnur mál, að það væri skrýtinn leiðangur fyrir þrjá flokka í ríkisstjórn að fara í Evrópuleiðangurinn þegar engin sannfæring er fyrir slíku. Mér þætti það einfaldlega ekki heiðarlegt, mér þætti það ekki góð pólitík. Það skiptir meira máli að segja bara skýrt hvar maður stendur. Það hefur hv. þingmaður gert í sínu máli og það tel ég mig og minn flokk hafa gert sömuleiðis.