Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:42]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þá er það bara einfaldlega komið á hreint að hæstv. ráðherra treystir ekki þjóðinni til að taka þetta næsta skref. Við skulum hafa það hugfast að EES-samningurinn er einmitt búinn að tryggja þetta frelsi sem hann nær yfir. En þegar við förum aðeins út fyrir hann, hvaða mynd blasir við okkur þá? Það blasir við okkur fákeppni af því að við erum með krónuna. Erum við með samkeppni á bankamarkaði, samkeppni á tryggingamarkaði? Nei, af því að það tekur ekki til þess markaðar, ekki frekar en við horfum upp á ákveðna fákeppni til að mynda í landbúnaði. Ég held að ein besta breytingin fyrir bændur landsins væri að losa þá úr viðjum þessara hafta sem þeir eru í í dag, þessu milliliðakerfi landbúnaðarins sem gagnast hvorki bændum né neytendum. Við þurfum að koma þeim inn í meira frelsi sem felst í því að þeir ákveða sjálfir sína jarðrækt o.s.frv. Það er fásinna að segja hér að við eigum ekki að taka næsta skref, alla vega að kanna það af því að það eru einmitt tækifæri (Forseti hringir.) í því að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið og sjá hvernig það getur byggt undir íslenskt samfélag og ýtt þessari fákeppni frá sem ríkisstjórnin hefur einmitt verið (Forseti hringir.) að byggja upp undir. (Forseti hringir.)

Varðandi loftslagsmálin, virðulegi forseti, þá mun ég koma að þeim í minni ræðu sem verður hér síðar í dag. En það er risamál og ég styð hæstv. ráðherra eindregið (Forseti hringir.) í því að koma að ákveðnum sjónarmiðum þar. En það eru mörg mál eða margir vinklar þar (Forseti hringir.) sem gefa tilefni til að staldra við hvernig ríkisstjórnin hefur haldið á þeim málum.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutíminn er takmarkaður í andsvörum og svörum.)