Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:46]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína ræðu. Ég ætla nú að byrja á að spyrja hana út í hvenær sé von á þingsályktunartillögu um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á XI. viðauka: Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, EES-samningur? Blindrafélagið hefur kallað eftir því að innleiðingu verði lokið sem fyrst en þingmálinu hefur ítrekað verið frestað. Samkvæmt þingmálaskrá á tillagan að vera á dagskrá í næstu viku, en mun ráðherrann tryggja að svo verði? Þetta er þingsályktunartillaga um staðfestingu ákvörðunar er varðar rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið. Þessi tilkynning snýr að því að auðvelda blindum og sjónskertum að nota íslenskar vefsíður. Ég vona heitt og innilega að ráðherra drífi í þessu vegna þess að þetta er mjög mikilvægt mál.

En síðan vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort henni finnist þetta eðlilegt: Alls voru 10.692 gerðir teknar upp í EES-samningnum á árunum 1994–2019. Þar af voru 2.920 tilskipanir, 4.557 reglugerðir, 2.881 ákvörðun, 142 tilmæli og loks 192 gerðir af öðrum toga. Þetta eru tölur frá 2019 og því hefur eflaust mikið bæst við síðan. Ég bendi á að í nýjustu útgáfu EES-viðbæti Stjórnartíðinda, þess 13. á þessu ári, er fjallað um 29 ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar. Eins og ég segi þá er þetta nú þegar 13. viðbætirinn á þessu ári og í fyrra voru þeir 86. Er ekki nóg komið af þessum reglugerðum, hæstv. ráðherra?