Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:48]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Forseti. Fyrst varðandi fyrri spurningu hv. þingmanns þá er ég nokkuð örugg um að hann sé að vísa til þess máls sem ég fór með til ríkisstjórnar í morgun í formi þingsályktunartillögu, sem fer fyrir stjórnarflokkana á morgun og síðan inn í þingið. Frumvarpið er, ef ég man rétt, lagt fram af fjármála- og efnahagsráðherra um upplýsingatæknimál, ég held það sé réttur ráðherra, og er sú innleiðing sem snýr einmitt að því að bæta umhverfi og rétt fatlaðs fólks til að nálgast þessar upplýsingar. Ég nefni þó að mörg vefsetur stjórnvalda uppfylla þegar kröfur tilskipunarinnar og þar með talið þau sem nýta sér umgjörð island.is. Þannig að ákveðnu leyti höfum við þegar innleitt þetta en þetta er sem sagt á leiðinni hingað inn í þingið.

Varðandi þessa miklu pappíra sem við tökum hér upp, þá er það þó einungis um 15% af löggjöf Evrópusambandsins sem er allur þessi fjöldi. Vissulega er þetta mikil skriffinnska og vissulega er mikil vinna að innleiða þetta. En þegar valkosturinn er að gera það ekki og vera með þetta svæði, mínus Ísland, sem þróast og breytist og er með leikkerfi sem uppfærist svona reglulega og við værum með eitthvert allt annað leikkerfi sem við gætum ekki gengið úr skugga um að væri algjörlega sambærilegt fyrir bæði einstaklinga, lögaðila og fyrirtæki sem sækja þennan markað, þá tel ég það nauðsynlega fjárfestingu til að viðhalda þeim sameiginlegu leikreglum, að standa í því að innleiða og þýða og birta og vinna til að eiga þetta aðgengi að 450 milljóna manna markaði, bæði fyrir okkur Íslendinga, til að sækja þangað, og sömuleiðis fyrir okkar fyrirtæki, enda væri íslenskur markaður agnarsmár fyrir þau langflest.