Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:50]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og fagna því ef þessi reglugerð er að koma inn og klárast. Jú, við getum alltaf fundið eina og eina ágætisreglugerð í EES-farganinu. En þegar við sjáum allan þennan fjölda — þann tíma sem ég verið á þingi þá hafa mér eiginlega fundist EES-reglugerðir vera það leiðinlegasta sem ég les. Þær eru ekki á mannamáli, ég veit ekki á hvaða máli þetta er. Þetta eru svo miklar vísanir í alls konar reglur og lög og það er stundum bara vonlaust að átta sig á því um hvað er að ræða. Ég spyr: Er ekki kominn tími til að grisja svolítið þannig að við fjöllum um þau mál sem varða okkur, að við þurfum t.d. ekki að fjalla um málefni sem varða lestarferðir eða tengingu við raforku í Evrópu af því að við erum ekki tengd við það, að sjá til þess að við séum að fjalla um mál sem varða okkur en ekki hin?