Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:51]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég get ekki annað sagt en að ég sé bara alveg sammála hv. þingmanni. Þetta er oft enginn skemmtilestur, oft mjög langt frá því að vera æsispennandi eða mikil pólitík og oft mjög nákvæmt og vissulega oft eitthvað sem snertir okkur ekkert mikið, eða það kemur alla vega alloft fyrir að þetta snertir ekki okkar hagsmuni með beinum hætti. Auðvitað væri gott að fara í einföldun regluverks þar eins og er þörf á hér. Að hluta til er þörf á því hér vegna regluverksins þaðan, en líka vegna þess sem við höfum smíðað sjálf og það sama á við hjá þeim.

En aftur segi ég að það sem við tökum hér inn og á ekki beint við er jú einhver kostnaður við í þýðingu og vinnslu, en það hefur þá alla vega ekki einhverjar neikvæðar afleiðingar. Þetta er það sem fylgir því einfaldlega að vera hluti af samningi við aðra. Ef við gætum haft þetta nákvæmlega eftir okkar höfði héti þetta örugglega ekki samningur heldur eitthvað annað, þannig að þetta er einfaldlega það sem því fylgir. Og aftur eru kostirnir fleiri. En ég tek undir með hv. þingmanni, bæði um skemmtanagildið og magnið.