framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að ræða um skemmtanagildi EES-reglugerða en mér finnst þær mjög skemmtilegar til lesturs. Hæstv. utanríkisráðherra fjallaði um ETS-kerfið og hagsmunagæslu fyrir Ísland í því ákveðna máli, varðandi loftferðir. Mig langar að ræða aðeins víðara um hagsmunagæslu. Nú er ekki langt síðan fulltrúar ráðuneytanna fóru að vera í Brussel og við bættum aðeins við í starfsliði þar til þess að sinna einmitt þessari hagsmunagæslu. En það ber svolítið á því að það eru mál að koma í gegn í Evrópusambandinu og inn í löggjöfina þar, sem við hefðum kannski viljað getað bent á að við vildum taka þátt í mun fyrr en áður og hafa áhrif á áður. Verandi einn af þeim þingmönnum sem eru í EFTA/EES-nefndinni þá fáum við stundum kynningar á málum sem eru að koma inn, eru ekki orðin að reglugerðum þarna úti en eru komin á umræðustig. Mér hefur þótt það vera þannig að við mættum vera mjög aktíf í mörgu af því. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða leiðir höfum við til þess, án þess að senda hundrað manns út til Brussel og Strassborg og Lúxemborgar og allra þeirra staða þar sem sambandið er, að bæta enn betur í þessa hagsmunagæslu til að tryggja það einmitt að við vöknum ekki upp einn daginn og það er ekkert flug frá Keflavík?