Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[14:55]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst um þær breytingar sem við höfum unnið að undanfarin ár, fyrir mína tíð, að auka hagsmunagæslu í Brussel. Það hefur skipt mjög miklu máli og hefur bætt stöðu okkar mjög. Við megum auðvitað ekki gleyma því að það er ekkert annað ríki sem passar upp á okkar hagsmuni í EES-samstarfinu eða í samskiptum við Evrópusambandið heldur en við sjálf. Eins og ég nefndi áðan erum við okkar eigin gæfu smiðir í því. Við erum með teymi í Brussel og forgangslisti stjórnvalda er þeirra leiðarljós þannig að þau vinna eftir því. Vissulega er það þarna eins og í öllu öðru alþjóðasamstarfi að því eru engin takmörk sett hvar er hægt að vera og hvar er hægt að taka þátt þannig að það þarf að vera einhver forgangsröðun og forgangslistinn er þeirra leiðarljós til að tryggja að þau séu á réttum stöðum. Þar af leiðandi er mikilvægt að endurskoða hann reglulega til að það sé skýr forgangsröðun og allir séu upplýstir um hver sú forgangsröðun er og tekið samtal um hvort hún sé sú rétta. En núna erum við með fulltrúa allra ráðuneyta nema eins, eins og ég nefndi. Ég held, og segi það bara sem mína persónulegu skoðun, að það séu tækifæri til úrbóta með því að teymið sem er í Brussel, sem er mannað af einum fulltrúa frá hverju ráðuneyti, sé minna sérmerkt hverju ráðuneyti fyrir sig heldur geti brugðist við eftir því hvar hagsmunirnir liggja hverju sinni. Þeir eru mjög misjafnir, bæði almennt, þeir eru t.d. óumdeilanlega meiri í orku-, umhverfis- og loftslagstengdum verkefnum en einhverju öðru, þannig verður það áfram, en það sveiflast líka og það koma upp mál. Ég held að við gætum nýtt þessa krafta enn betur ef það væri meira svigrúm þar, sem er bara eitthvert framkvæmdaratriði fyrir okkur, og svo með meiri fjárfestingu hér heima og áhuga og meðvitund um það sem er að gerast þar. Þetta verður ekki bara eitt afmarkað teymi sem heldur utan um þetta (Forseti hringir.) heldur þurfum við öll, bæði kerfið og stjórnmálin og atvinnulífið, að vera vakandi og vera meðvituð.