framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið og er algjörlega sammála henni að þarna megi bæta í. Eitt nýlegt dæmi um það sem hópurinn þarna úti er byrjaður að gera er að senda þingmönnum í utanríkismálanefnd og EFTA/EES-nefndinni dagskrá þingsins, bara þannig að við sjáum hvað er að gerast þarna á svæðinu.
Í seinna andsvari langaði mig að ræða aðeins við hæstv. ráðherra um það að nú höfum við verið þátttakendur í mörgum mismunandi verkefnum Evrópusambandsins. Kannski eru Erasmus og Horison verkefnin þekktust og þar hefur verið góð þátttaka. Hluti af EES-samningnum er þannig að við erum að greiða inn í mörg af þessum verkefnum, ýmsar fjárhæðir. Erasmus og Horizon hafa gengið vel en það er fullt af öðrum verkefnum sem falla líka undir önnur ráðuneyti. Hvað getum við gert til þess að auka þátttöku Íslendinga í þessum verkefnum (Forseti hringir.) og þannig tryggt að við séum í rauninni að fá fjármagnið til baka til landsins sem við erum að senda til Brussel?