framkvæmd EES-samningsins.
Herra forseti. Við erum vissulega á réttri leið þar og við fáum nú þegar í dag meira út úr samstarfinu en við leggjum í það, þá er ég að meina út frá fjármunum. Við fáum meira í styrki heldur en við setjum inn. Ég nefni þó að það er ekki eini mælikvarðinn vegna þess að með þessu samstarfi þá eykst tengslanetið, þekking og þekkingaryfirfærsla og annað slíkt sem er líka mikils virði og er ekki mælt eingöngu í krónum. Þannig að við erum á réttri leið. Hér hafa ráðuneyti, stofnanir, Rannís og Tækniþróunarsjóður og aðrir slíkir aðilar hlutverki að gegna að láta vita og auglýsa og markaðssetja, benda á styrki o.s.frv. Svo held ég líka að lífræn þróun í þessu skipti máli, það er meiri athygli á þessu þegar það koma einmitt styrkir og verkefni og þetta verður hluti af okkar umhverfi, sem er vissulega að gerast. Við eigum alltaf að vera með mikinn fókus á þessu vegna þess að þarna er hægt að fá gríðarlega mikla fjármuni fyrir utan síðan tengslanetið og annað sem skiptir líka máli.