Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[15:18]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ánægður með að heyra skoðun hæstv. utanríkisráðherra á gullhúðuninni. Nei, auðvitað tel ég það ekki gefið að við fáum eitthvað betra. Ég tel að það séu möguleikar á því vegna þess að þetta er ofboðslega stórt og öflugt samband með marga viðskiptasamninga. Það var einmitt þess vegna sem ég lagði áherslu á að við myndum gera greiningu og skýrslu, þingið allt saman, á þeim veruleika sem birtist ef við færum þar inn. Við getum svo bara dregið okkar ályktanir af þeirri skýrslu og tekið efnislega umræðu um það hér. Ég ætla að freistast til að spyrja á móti, þó að ég sé hér í andsvörum: Við sinnum hagsmunagæslu okkar eins vel og við getum en við erum fá, við erum 15 sinnum færri en Norðmenn og það eru töluverðar líkur á því að Norðmenn taki upp á því einn daginn, í þriðja skipti, að sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu og það er meiri hluti fyrir því innan stjórnmálaflokkanna og það er vaxandi fylgi við það hjá almenningi líka. Í hvað stöðu telur hæstv. ráðherra að við séum í þá? Telur hún að við þyrftum að fylgja Norðmönnum inn í Evrópusambandið? Teldi hún að það væri mögulegt að halda uppi Evrópska efnahagssamningnum með Íslandi og Liechtenstein eða teldi hún þá að við ættum bara að hverfa aftur til ársins 1989, sennilega?