framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Þetta eru nú orðin öfugsnúin andsvör. Mér finnst blasa við að það myndi hafa gríðarleg áhrif á fyrirkomulagið eins og það er núna ef Noregur tæki upp á því að ganga í Evrópusambandið. Ég held að það sé alveg ljóst. Hins vegar er það eitthvað sem er ekkert hægt að segja til um núna hvort gerist, með hvaða hætti og hvernig mál munu þróast að öðru leyti o.s.frv. Það yrði aldrei niðurstaða fyrir Ísland að fara fjóra áratugi aftur í tímann og vera með engan samning við Evrópusambandið eins og við höfum núna, það er alveg augljóst, enda hef ég ekki trú á því að það yrði. Við erum í mjög góðum færum með að vinna eins náið með Evrópusambandinu og við viljum og við teljum rétt. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að gera eins vel og mikið af því og við getum og er áfram þeirrar skoðunar að gera það í gegnum EES-samninginn en ekki með aðild.