framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er af mörgu að taka en mig langaði að koma hérna upp í tilefni orða hv. þingmanns um óstöðugan gjaldmiðil og vaxtastig ESB. Ég geri auðvitað athugasemd við að rætt sé um ESB sem eitthvert heildstætt svæði í þessu samhengi, eins og aðstæður séu alveg nákvæmlega eins frá einu landi til annars. Er ekki annars 20% verðbólga í Eystrasaltinu, eða hvað? En gott og vel, þá bara á móti notast ég við sömu taktík og þó að ég viti svarið þá spyr ég hv. þingmann að þessu: Hver er hagvöxtur í ESB um þessar mundir? Er einhver tenging á milli hagvaxtar og vaxtastigs? Hvert er atvinnustigið í ESB? Hver er kaupmátturinn í ESB og hvernig hefur hann þróast undanfarin ár? Hver eru lífskjörin í ESB samanborið við Ísland? Ég get gefið hv. þingmanni vísbendingu. Ísland er þar í þriðja sæti. Það eru ekki ESB-lönd í fyrstu tveimur sætunum þar á undan. Og að lokum fyrir, sem miklu máli skiptir fyrir útflutningsþjóð eins og Ísland þar sem bandaríkjadollar er auðvitað okkar meginviðskiptagjaldmiðill: Hvernig hefur stöðugleiki evru verið gagnvart dollar undanfarin ár?