framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hv. þingmaður er bara gott efni í ráðherra, heyrist mér, eins og hann var lunkinn við að sneiða fram hjá því að svara mér. Ég get tekið undir að erfiðar aðstæður hafa bitið en þær hafa þá a.m.k. bitið minna hér heldur en í ESB. Þótt ég eigi ofboðslega erfitt með að færa mig úr evruumræðu yfir í næstu spurningu þá ætla ég samt að gera það. Hv. þingmaður fékk mig til þess að mala eins og kött þegar hann fór fögrum orðum um EES-samstarfið en það var skammgóður vermir því að fljótlega fór hann að sýna sitt rétta eðli og tók upp bábilju varðandi upptöku reglufargansins frá ESB. Af hverju heldur hv. þingmaður því fram hér í ræðustól að við tökum upp meiri hluta af regluverkinu frá ESB? Við létum taka þetta út þegar ég var aðstoðarmaður í utanríkisráðuneytinu. Talan er 13,4%, hv. þingmaður. Ég bara spyr: Hver er tilgangur þess að halda þessum ósannindum fram trekk í trekk, þessari röngu staðreynd (Gripið fram í.) Hver er tilgangurinn? (Forseti hringir.) Er hann kannski sá að grafa undan EES-samningnum? Eða hver er tilgangurinn?