framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Það að hæstv. utanríkisráðherra þess tíma, Guðlaugur Þór Þórðarson, og aðstoðarmaður hans, Diljá Mist Einarsdóttir, hafi ákveðið að taka þetta út úr einhverjum skýrslum og tölum í ráðuneytinu þýðir sannarlega ekki að það sé rétt. Við þurfum ekkert annað heldur en að fara bara í stóru úttektarskýrslu Norðmannanna sem gerð var fyrir 10–15 árum um EES-samninginn þar sem 13% talan hans Guðlaugs Þórs Þórðarsonar var 70% og það þarf ekkert annað en að skoða úttektarskýrslu hóps sem Björn Bjarnason leiddi til þess að komast að þeirri niðurstöðu að þetta var rangt hjá fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra. Ég tel mig hins vegar geta á sama tíma fagnað, hrósað og glaðst yfir góðum samningi sem við höfum með EES-samstarfinu en horft fram á veginn og skoðað hvort hugsanlega sé skemmtilegra veitingahús handan við hornið.