framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir hans ræðu. Ég óttaðist að þetta yrði hundleiðinleg umræða hérna um EES. Ég er búinn að komast að því að því að þessar reglugerðir eru svo leiðinlegar en þetta er bara hin skemmtilegasta umræða. Eins og kom fram þá er þetta ótrúlegur fjöldi, 10.692 reglugerðir frá 1994–2019, þetta ekki nema 15% af þeim reglugerðum sem verið er að taka inn. Ég segi fyrir mitt leyti að eitt það besta við þær er það sem ég uppgötvaði einu sinni þegar ég var að lesa svona reglugerð uppi í rúmi, rétt áður en ég fór að sofa, og ég steinsofnaði um leið. Þetta slekkur á heilanum í manni alveg á stundinni. En eins og með öll góð svefnmeðul koma slæmar aukaverkanir og ég vaknaði upp með martröð um að við værum gengin í ESB. Það er skelfileg martröð. Ég spyr hv. þingmann: Hvernig líst honum á það, nú erum við að taka við 15%, að við ættum að fara að taka við 85% í viðbót af þessum óskapnaði sem er þarna í gangi í þessu reglugerðarfargani? Og er hann ekki sammála mér að það hlýtur að vera löngu tímabært hjá þessu Evrópusambandi að fyrir hverja eina reglugerð sem þeir setja inn þá þurfi þeir að taka út svona þrjár, fjórar? Það þarf nú að fara að grisja sumt af þessu. Reglugerðirnar eru stórfurðulegar. Ég man að ég fór á fund hjá Evrópusambandinu um fátækt og félagslega einangrun í Brussel. Það er furðulegasti fundur sem ég hef farið á um fátækt vegna þess að hann var haldinn í kastala þar sem allt var í gulli og voða flottheitum og þvílík veisluhöld og þarna var fullt af fátæku fólki sem vissi ekki hvert það væri komið eiginlega. Það var ákveðið að fara í mótmæli fyrir framan Evrópusambandið í Brussel en þá bara kom liðið upp skelfingu lostið: Það má ekki, það þarf að sækja um það með sex mánaða fyrirvara og það eru alveg séreyðublöð, það er ekki hægt að fara í svoleiðis hér lengur. Mér fannst þetta óeðlilegt. Ég spyr: Trúir hann því virkilega að við á Íslandi munum hafa það betra við að fara inn í þetta batterí?