framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Já, ég trúi því sannarlega en hins vegar gekk ég ekki lengra í ræðunni heldur en að tala um að það færi fram hagsmunamat. Þá get ég og hv. þingmaður dregið okkar ályktanir þegar það hefur farið fram. Það er hins vegar mjög glannalegt á þessum kviku tímum sem við lifum á að reyna ekki að horfa fram í tímann. Nú hefur hv. þingmaður óskoraða virðingu mína fyrir hans óþreytandi baráttu fyrir hópa aldraðra, öryrkja og annarra sem eiga undir högg að sækja. Ég býst við að ef hv. þingmaður myndi nú halda áfram að lesa sig í gegnum þessi leiðinlegu skjöl þá kæmist hann að því, eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra og skýrslu fjórmenninganna fyrir fjórum árum, að það væru nú ansi margar réttarbæturnar sem hefðu komið í gegnum þennan EES-samning einmitt til fólksins sem hann hefur barist ötullega fyrir síðustu sex eða sjö ár.