Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[15:32]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég verð bara að segja það hreint og beint: Nei, það yrði skelfileg staða. Nógu slæm er staða þessa fátæka fólks hér á Íslandi, verst setta fólksins, en hún er mun verri í Evrópu. Því fékk ég að kynnast á þessari ráðstefnu. Þar kom líka skýrt fram að regluverkið, þetta ótrúlega regluverk, var að þvælast fyrir fólki. Þar var fólk í þúsundatali á þessum tíma sem var húsnæðislaust, svaf úti og átti í engin hús að venda og þurfti að þiggja matargjafir. Ég verð að segja alveg eins og er að þó að staðan sé slæm hér á Íslandi þá var hún mun verri hjá þessu fólki, því ég var að tala við þetta fólk, það var þarna á staðnum og ég fór í heimsókn til fólksins þar sem var verið að gefa mat.