framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Nú mæti ég mér sjálfum svolítið í dyrunum vegna þess að ég alhæfði nú dálítið um Evrópusambandið áðan í samræðum við hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur. En þá held ég áfram með það sem hún sagði; ástandið er ekki einsleitt í Evrópu. Þó að hv. þingmaður hafi spjallað við eitthvert fólk þá þarf nú að koma fram hvar það var. Við erum ekki, með því að vera þátttakendur í samræmdu regluverki á ýmsum sviðum, að fara að afsala okkur réttinum til að drífa áfram íslenskt samfélag með þeim hætti sem við höfum gert, þvert á móti. Ég held að það sé náttúrlega alveg fráleitt að álykta að hlutirnir færu á þann versta veg sem finnst í Evrópu við það að ganga í Evrópusambandið. Er ekki þingmaðurinn sammála mér um að það sé sjálfsagt að það fari fram hagsmunamat þannig að við getum bara tekið þessa umræðu þegar því er lokið?