Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[16:03]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir góða framsögu í þessari mikilvægu umræðu. Sú staðreynd að þriðjungur Íslendinga er fæddur eftir gildistöku EES-samningsins hefur sína kosti en líka, kannski ekki galla en vissulega áskoranir, og hvað þá að enn fleiri muni ekki aðra tíma en innan EES-samstarfsins. Áskoranirnar felast í því að svo ótal margt sem hefur fylgt samningnum þykir í dag orðið algjörlega sjálfsagt. Við getum hreinlega ekki ímyndað okkur íslenskt samfélag án samningsins. Ávinningur af EES-aðild er í það minnsta ótvíræður þótt ekki sé einfalt að meta heildaráhrif samningsins. Ég tek þó undir inngangsorð skýrslunnar sem við ræðum hér í dag um að aukning í landsframleiðslu og ráðstöfunartekjum einstaklinga samhliða stórauknum útflutningi okkar á vöru og þjónustu til annarra ríkja á EES-svæðinu sé vissulega skýr mælikvarði, sömuleiðis fjölmörg tækifæri á sviði menntunar, vísinda, rannsókna og nýsköpunar. Þetta fyrirmyndarsamfélag okkar er sem sagt ekki allt Sjálfstæðisflokknum að þakka, það viðurkennist hér með. En vissulega áttum við Sjálfstæðismenn stóran þátt í því að þjóðin steig þetta gæfuspor að gerast aðildarríki að EES-samstarfinu eins og hv. þm. Logi Einarsson komst að orði, ekki sem sagt varðandi okkur Sjálfstæðismennina heldur gæfusporið.

Fyrst ég tala um flokkinn minn og EES-samstarfið verður ekki sagt nógu oft hversu jákvætt það er að við höfum aftur farið að gæta almennilega hagsmuna okkar í samstarfinu. Það er nefnilega þannig að það gerir enginn annar. Eða eins og segir í skýrslunni þá erum við Íslendingar, í þessu samstarfi eins og öðru, okkar eigin gæfu smiðir. Samstarfið felur enda í sér upptöku hluta löggjafar ESB svo að íslensk fyrirtæki og neytendur búi við sama rétt og aðrir á EES-svæðinu en við getum þurft að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og krefjast jafnvel aðlögunar og undanþága. Það er því gríðarlega mikilvægt að við vinnum áfram að umbótum og átaksverkefnum við framkvæmd EES-samningsins. Samningurinn er lifandi plagg og er í stöðugri þróun og því er verkefnið viðvarandi. Við höfum séð að árangur hefur náðst með virkri hagsmunagæslu fyrir Ísland í samstarfinu og við megum ekki slá þar slöku við.

Eins og fram kemur í skýrslunni er lykillinn að árangursríkri hagsmunagæslu í EES-samstarfinu þátttaka fulltrúa fagráðuneytanna. Það er mikilvægt að sérfræðingar þeirra greini viðfangsefni ESB til að geta séð hvort og þá hvernig þau koma við íslenska hagsmuni. Núna eiga níu fagráðuneyti fulltrúa að störfum fyrir Ísland í Brussel. Ég tel það vera mikið hagsmunamál að öll fagráðuneytin eigi sinn fulltrúa þar og velti fyrir mér af hverju menningar- og viðskiptaráðuneytið á þar ekki fulltrúa, ekki síst þar sem það á sér stað umtalsverð þróun innan ESB á ábyrgðarsviði ráðuneytisins.

Virðulegi forseti. Það er varla hægt að minnast á hagsmunagæslu um þessar mundir án þess að minnast á mál sem varðar íblöndun flugvélaeldsneytis. Þetta mál er gott dæmi um mikilvæga hagsmunagæslu okkar í EES-samstarfinu. Eins og hæstv. ráðherra fór yfir í framsögu sinni var málið tekið föstum tökum um leið og ljóst varð hversu miklir hagsmunir eru í húfi fyrir okkur. Í þessu máli hafa hæstv. ráðherrar okkar m.a. lagst á eitt við að kynna áhrif umræddra áforma á Ísland auk embættismanna utanríkisráðuneytisins og sendiráðs okkar í Brussel og í fleiri aðildarríkjum ESB sem hafa átt hátt í 100 fundi um málið. Þrátt fyrir að greint sé frá því í skýrslunni að nokkur árangur hafi þegar náðst í þessu samstillta átaki er gott að vita að stjórnvöld séu skýr um þá afstöðu að Ísland muni ekki samþykkja upptöku gerðarinnar án efnislegra aðlagana. Og talandi um hagsmunagæsluna þá er alltaf svo gaman þegar við hv. þingmaður Logi Einarsson erum sammála, sem gerist miklu oftar en mig hefði grunað. Ég tek heils hugar undir brýningu hans á því að við þurfum að varast og afhjúpa gullhúðun í íslensku lagaumhverfi og hef því m.a. lagt fram beiðni um skýrslu um gullhúðun til hæstv. umhverfisráðherra eins og fram hefur komið.

Virðulegi forseti. Reynslan hefur sýnt að sá stuðningur sem við höfum fengið úr samstarfsáætlunum ESB, bæði fjárhagslegur og ófjárhagslegur, hefur verið mun meiri en sem nemur framlögum Íslands vegna þeirra. Það er því jákvætt að tekin hafi verið ákvörðun um þátttöku Íslands í þeim og sérstaklega ánægjulegt að lögð sé aukin áhersla á samstarf á sviði rannsókna, nýsköpunar og menntunar og tengsl þessara þátta við atvinnulífið með það fyrir augum að efla sjálfbærni Evrópu, samkeppnishæfni og auka hagvöxt. Eins og talað út úr mínu hjarta.

Annað samstarf innan samningsins sem ég vil endilega nefna er uppbyggingarsjóður EES en á núverandi tímabili hafa íslenskir aðilar tekið þátt í yfir 300 verkefnum vegna tiltekinna verkefna uppbyggingarsjóðsins. Við fórum enda nýlega í mikið átak til að auka þátttöku í verkefnum á vegum sjóðsins en þar eru mikil tækifæri fyrir Íslendinga til að auka viðskiptaleg og efnahagsleg tengsl við tiltekin EES-ríki. Þar höfum við sömuleiðis mikið fram að færa, ekki síst á sviði jafnréttismála og á sviði umhverfis- og orkumála. Við höfum mikla sérþekkingu á þeim sviðum og m.a. heimsótti formaður jafnréttisnefndar Evrópuþingsins Ísland í því skyni að afla upplýsinga um jafnréttismál.

Loftslagsmálin og græn umskipti hagkerfa eru ein stærsta áskorun samtímans. Það kemur því e.t.v. ekki á óvart að margar af umfangsmestu tillögum núverandi framkvæmdastjórnar ESB eru lagðar fram undir hatti Græna sáttmála ESB. Markmiðið er að ESB verði kolefnishlutlaust fyrir árið 2050 og umskipti sambandsins yfir í grænt hagkerfi. Ísland hefur, eins og við höfum oft rætt í þessum sal, sett sér afar háleit markmið í loftslagsmálum um 55% samdrátt í losun fyrir 2030 og kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Evrópulöndin hafa sammælst um þessi umskipti og öllum breytingum fylgja tækifæri. Þar erum við Íslendingar í miklu sóknarfæri og ég tel að við eigum að nálgast þessa umræðu frá því sjónarhorni.

Virðulegi forseti. Ég tek undir umfjöllun skýrslunnar um mikilvægi alþingismanna fyrir farsælt EES-samstarf. Auk þess sem EES-mál fara reglulega hér í gegnum þingið þá sit ég í þingmannanefnd EES og EFTA sem er gríðarlega mikilvægur vettvangur fyrir þingmenn samstarfsins til að taka með beinum hætti þátt í samstarfinu. Þá er mikilvægt að heyra viðhorf kollega okkar í samstarfsríkjunum milliliðalaust. Þar öðlumst við betri skilning á þeirra áskorunum og viðfangsefnum og þau á okkar.

Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hæstv. ráðherra um að EES-samningurinn hafi á gildistímanum sannað gildi sitt, ekki síst á umbrotatímum. Rétturinn til að vinna, til menntunar og til að búa hvar sem er innan EES, loftferðasamningar, fjármálakerfi innri markaðarins, reiki, símafrelsi í Evrópu — allt eru þetta dæmi um réttindi sem okkur þykja orðið sjálfsögð. Þess vegna er mikilvægt að við ræðum EES-samninginn sem oftast og hvaða þýðingu hann hefur haft fyrir íslenskt samfélag og að við miðlum upplýsingum um hann til almennings. Þess vegna fagna ég þessari umræðu hér í dag, umræðu sem fer hér fram í þriðja sinn og er til komin út af frumkvæði og framtaki okkar Sjálfstæðismanna. Við stöndum eftir sem áður vörð um EES-samninginn, mikilvægasta viðskiptasamning okkar Íslendinga.