framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að vera kominn upp í þennan stól aftur eftir tæplega 24 ára hlé frá því að ég stóð hér síðast og sérstaklega ánægjulegt að koma upp á eftir hv. þm. Diljá Mist sem talaði hér eins og sannfærður Evrópusinni. Þetta sýnir okkur bara hvað orð geta skipt miklu máli. Ef við hefðum skipt út Evrópska efnahagssvæðinu eða samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og EES fyrir t.d. Evrópusamruna þá hefði þessi ræða getað verið flutt í Evrópuþinginu og allir hefðu staðið upp og klappað. Það er auðvitað rétt hjá hv. þm. Diljá Mist að hennar stjórnmálaflokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, átti auðvitað mikinn þátt í því að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið komst í virkni á sínum tíma og ber að þakka það því að það er svo sannarlega rétt að hann hefur skipt sköpum fyrir okkur Íslendinga síðustu 30 árin sem hann hefur verið í gildi.
Mig langar líka til að nefna það sem hefur verið nefnt hér áður í dag, það þrekvirki sem okkar fólk í Brussel er að vinna með því að fylgjast með því sem er að gerast í Evrópusambandinu og gæta hagsmuna Íslendinga þegar kemur að því að skoða þær gerðir sem koma frá sambandinu. Þess vegna langar mig til að spyrja hv. þm. Diljá Mist hvort það væri ekki ástæða til að skoða í hversu miklu betri stöðu við værum til að gæta okkar hagsmuna ef við einfaldlega stigum skrefið til fulls og tækjum fullan þátt í þessu góða samstarfi fullvalda Evrópuríkja eins og meira og minna öll önnur ríki í okkar álfu.