Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[16:14]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega andsvarið og hrósið því ég tek því sem hrósi. Ég er líka sammála því að orð skipta miklu máli. Ég er nefnilega sannfærður Evrópusinni, ég er sannfærður Evrópusamvinnusinni en það þýðir ekki að ég sé sannfærður Evrópusambandssinni. Þetta er nefnilega eitt af þeim brögðum sem ESB-sinnar hafa beitt í umræðunni, að breyta ESB-sinni yfir í Evrópusinni, sem er mjög sniðugt hjá þeim. En ég fell ekki í þá gryfju. Ég tek undir orð hv. þingmanns varðandi það þrekvirki sem hefur verið unnið varðandi hagsmunagæsluna úti í Brussel og full ástæða til að nefna það sem oftast. Varðandi það að við könnum það hversu miklu betra ESB-samstarfið yrði þá tel ég það hafa verið þaulkannað í gegnum tíðina og í rauninni er ein af þeim mýtum sem hefur verið haldið á lofti í þessari umræðu sú að það liggi einhvern veginn ekki ljóst fyrir hvaða viðbætur felist í því að ganga í ESB. Það er ekki uppi neinn misskilningur um það. Við vitum alveg hvað við fáum út úr EES-samstarfinu og hvað er innifalið í ESB-samstarfinu. Við vitum hvar við stöndum fyrir utan og hvar við stöndum fyrir innan. Ég er þeirrar skoðunar að við höfum, eins og staðan er í dag, kannað það til hlítar, m.a. var gerð úttekt af Birni Bjarnasyni nýlega og kom út skýrsla um kosti og galla eða úttekt á EES-samstarfinu. Ég hef metið það sem svo og mínir kollegar og meiri hluti þingmanna á Alþingi að okkur sé best borgið og mjög vel borgið innan EES-samstarfsins og við eigum að halda því áfram og standa utan við ESB. Og varðandi það að meira eða minna öll ríki í Evrópu standi innan ESB þá langar mig til að benda á það að þau ríki sem þó standa þar fyrir utan eru þau ríki sem í alþjóðlegum samanburði standa hvað best og best að vígi í Evrópu. Það er bara staðreynd.