153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[16:16]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að biðja hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur afsökunar á því að hafa ekki vísað til hennar með fullu nafni hérna áðan. Ég þakka kærlega fyrir svarið. Í sjálfu sér, þegar kemur að því að skoða áhrif þess að ganga í Evrópusambandið, þá vitum við auðvitað ekki alveg nákvæmlega smáatriðin fyrr en við göngum frá aðildarsamningi sem verður vonandi einhvern tímann, en það er ýmsum málum þar ósvarað. En það er hins vegar eitt sem er algerlega klárt og það er að þau okkar sem myndu þurfa að gæta íslenskra hagsmuna í Brussel myndu búa að mun meiri auðlindum þegar kemur að aðgangi að sérfræðinganefndum, fjármunum, styrkjum til ferðalaga og ýmiss konar annarri stoðþjónustu sem stendur Evrópusambandsríkjum til boða til að gæta sinna hagsmuna innan sambandsins. Það er auðvitað eitthvað sem liggur fyrir. Annars vil ég bara þakka fyrir þessa umræðu. Ég mun koma aftur upp á eftir og flytja mína sjálfstæðu ræðu um málið og hlakka til þess.