Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[16:17]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Varðandi það að við vitum ekki fyrr en við fáum samninginn í hendurnar hvað muni felast í aðild að ESB þá er það nú svo að við stóðum í aðildarviðræðum við Evrópusambandið í nokkur ár og eyddum í það miklum fjármunum, tíma og orku. Meðal annars drógum við mikið úr hagsmunagæslunni í EES-samstarfinu vegna þessa. En ég beini þeirri spurningu til baka til hv. þingmanns þó að ég viti að ég fái ekki svar við því, a.m.k. ekki núna: Á hverju strandaði? Af hverju fengum við ekki samninginn í hendurnar? Á hverju stoppaði það? Það skyldu þó ekki hafa verið sjávarútvegsmálin? Og varðandi þetta umfjöllunarefni, ávinninginn, það sem við þó vitum er að í öllum samanburði okkar við Evrópusambandslöndin þá stöndum við þeim einfaldlega framar, það er alveg sama hver ber niður. Bara svo ég vísi í orð seðlabankastjóra á opnum fundi nefndarfundi í morgun í efnahags- og viðskiptanefnd: Íslenskt atvinnulíf á sér enga hliðstæðu í Evrópu um þessar mundir, bara svo dæmi sé tekið. Ég fór yfir þetta í andsvari við hv. þm. Loga Einarsson áðan. Það er alveg sama hvaða tölur eru skoðaðar, hagvaxtartölur, kaupmáttur, laun, lífskjör og þar fram eftir götunum. Þannig að við höfum það bara fínt í okkar EES-samstarfi og ég ætla að halda áfram að styðja við það með öllum ráðum og dáð á þinginu og í umræðunni og ég vona að hv. þingmaður taki þar undir með mér.