Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[16:19]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Hér hefur ítrekað verið nefnd í umræðunni svokölluð gullhúðun. Nú sit ég í utanríkismálanefnd þingsins og þar renna í gegn, eins og flestir vita, margar lagatæknilegar gerðir í tengslum við EES-samninginn. Það má til sanns vegar færa að þær eru oft torskildar en okkur gengur nú ágætlega að fá upplýsingar frá okkar hæfu starfsmönnum ráðuneytis og annarra sérfræðinga um meginatriðin. En varðandi þessa gullhúðun, mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í hana: Hefur einhver úttekt farið fram á henni sem hún kannast við og hvað er raunverulega til ráða? Vegna þess að ég tel að hér sé um áhyggjuefni að ræða sem ég held að varði bæði þing og þjóð.