Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[16:22]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég er svona aðeins að gera mér grein fyrir málinu og þar sem samningurinn er ekki nýr af nálinni, sirka 30 ára, ef ég man rétt, þá veltir maður fyrir sér í hvaða tilfellum og hversu oft þetta hefur gerst og hvort þetta sé kannski eitthvert almennt vandamál, einhvers konar freistnivandi sem geti komið upp í tengslum við þetta. Að því sögðu þá fagna ég því auðvitað að verið sé að óska eftir skýrslu um þetta. Það verður mjög áhugavert að sjá útkomuna vegna þess að mér af vitandi hefur nú ekki mikil umræða farið fram almennt um nákvæmlega þetta vandamál og bæði þingmenn hér í umræðunni og hæstv. utanríkisráðherra hafa nefnt það hér að þetta sé mjög bagalegt. Því hefur líka verið fleygt að þetta sé í mörgum tilfellum ekkert endilega til góðs. En auðvitað hlýt ég að gera mér grein fyrir því að í einhverjum tilfellum kann að vera um einhvers konar viðbætur að ræða sem sannarlega geta verið til bóta. Ég geri ráð fyrir því að úttektin muni taka til þess að auki.