framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég held einmitt að það sé einhvers konar freistnivandi. En af því að ég er ekki með heildarumfangið eða úttekt fyrir fram mig þá er erfitt að sjá einhvers konar mynstur. Ég tek sömuleiðis undir það að mér þykir ekki hafa verið mikil umræða um þetta, en hv. þm. Logi Einarsson benti á það áðan að það sem gerist þegar verið er að bæta ofan í innleiðinguna er að það kemur auðvitað bara óorði á Evrópureglurnar, á uppruna þeirra, og fólk áttar sig ekki á því og gerir engan greinarmun á því hvað er heimatilbúið og hvað ekki. Það er mikilvægt að við höfum þessa aðgreiningu og getum þá tekið afstöðu til þess hverju sinni hvort við viljum ganga lengra eða ekki. Og svo verður bara fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessari úttekt hæstv. umhverfisráðherra, af því að beiðnin hefur verið samþykkt hér á Alþingi, og hvort tilefni er til að fara í frekari skoðun á þessu máli.