Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[17:11]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta góða dæmi um það hversu þversagnakennt og ruglingslegt þetta Evrópuregluverk getur oft verið og jafnvel unnið gegn markmiðunum sem lagt er upp með og því miður held ég að dæmin séu svo miklu fleiri og við ættum að fylgjast betur með hinum raunverulegu áhrifum þessa regluverks alls saman, óháð því hvað því er ætlað að gera samkvæmt yfirskriftinni. Raunveruleikinn reynist oft vera annar. En þótt ég sé ánægður með tóninn hjá hæstv. ráðherra þá er eitt sem veldur mér áhyggjum og það er þegar ráðherrann segir: Við munum ekki taka þetta upp algjörlega óbreytt. Þá er ég aftur farinn að hafa áhyggjur af þessum blaðamannafundi til að kynna stórkostlegan árangur Íslands í samningum við Evrópusambandið um þetta, að það verði þá gerðar einhverjar breytingar sem á yfirborðinu líti út fyrir að leysa vandann og það verði ekki fyrr en búið er að keyra málið í gegnum þingið að menn átti sig almennilega á afleiðingum. Er ekki bara rétt að segja: Við viljum undanþágu, við tökum þetta ekki upp?