framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Línan er í raun skýr hvað það varðar. Það er afstaða íslenskra stjórnvalda að gerðin verður ekki tekin upp í EES-samninginn án þess að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna. Nákvæm útfærsla á því er eitthvað sem við erum að vinna núna. En ég get algjörlega sagt það af sannfæringu og heiðarlega að ég mun ekki leggja til eða vinna að því að innleiða kerfi sem hefur stórkostlega skaðleg áhrif á Keflavíkurflugvöll og það er ekki bara það, þótt það væri líklega nóg vegna þess að það hefði skaðleg áhrif á ferðaþjónustu, á útflutningstekjur, á annan útflutning frá Íslandi, sjávarafurðum og annað, heldur lít ég einfaldlega svo á að þær miklu tengingar sem við höfum hér sem eyja lengst í burtu og höfum byggt upp í marga áratugi feli í sér gríðarlega mikilvæg lífsgæði fyrir Íslendinga og þá sem hér búa. Ég er hrædd um að ef við tækjum þetta upp án þess að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna þá yrðum við einfaldlega einangruð. Ég er bara ekki tilbúin til að innleiða regluverk sem hægt er að benda á að sé ósanngjarnt fyrir okkur að taka upp óbreytt þegar afleiðingarnar eru eins miklar og þær yrðu. Hins vegar er ég algerlega á því að við eigum ekki að biðja um að vera fullkomlega stikkfrí, mér finnst sjálfsagt og eðlilegt að við séum með í því að reyna að flýta fyrir þróun á til að mynda þessu flugvélaeldsneyti, sem mér finnst reyndar við ættum síðan að framleiða sjálf og framleiða næga raforku til að geta gert það. Það er efnahagslega skynsamlegt fyrir okkur í stað þess að þurfa á endanum að flytja það inn til að dæla á flugvélarnar á Keflavíkurflugvelli. En það er önnur umræða sem þó hangir saman við. Við eigum að skila okkar og við eigum að taka þátt í þessu kerfi upp að því marki sem er almennt fyrir hin ríkin en ekki sætta okkur við það að vera ein einhvers staðar hátt í loftum og borga miklu meira og horfa upp á mikinn skaða fyrir íslenskt samfélag.