Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[17:14]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég var ánægður að heyra hvað hæstv. ráðherra talaði afdráttarlaust um þetta. En vandi okkar liggur auðvitað að miklu leyti í því að hér er margítrekað búið að lýsa því yfir, bæði í umræðum í þinginu og í hinum ýmsu skýrslum stjórnvalda, að við ætluðum að fylgja Evrópusambandinu í þeirra umhverfisstefnu og hér hafa verið innleidd lög með vísan til þess að með því séum við góðir þátttakendur, þægir þátttakendur með Evrópusambandinu eins og það nálgast hlutina. Og þá kemur auðvitað Evrópusambandið og segir: Þið eruð búin að segja í öllum þessum greinargerðum ykkar að þið séuð með. Þið verðið bara að vera með núna þó að hin ýmsu mál geti komið misvel eða misilla við löndin. En þetta væri það skaðlegt fyrir Ísland að ég hvet hæstv. ráðherra enn og aftur til dáða með það. En ég hvet líka til þess að menn endurskoði margt af því sem verið er að gera, hvort heldur sem er með innflutningi á regluverki eða af hálfu íslenskra stjórnvalda, til að mynda skýrslurnar sem voru sendar út, reyndar bara á ensku, fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þar var í rauninni bara gert ráð fyrir því, samkvæmt sumum sviðsmyndum, að það væri mikill kostur að ferðamönnum fækkaði hér verulega, landbúnaður drægist saman, iðnaður minnkaði og álverin flyttu út. Þetta er ekki gæfuleg nálgun og kallar á að menn endurmeti afstöðu sína, enda er það auðvitað furðulegt þegar verið er að hvetja fólk til að ferðast meira, koma til Íslands, þá eigi á sama tíma að refsa því fólki sem gerir það með því að láta það borga hærri gjöld. Og hvað þýðir þetta? Það er eins og að á svo mörgum sviðum umhverfismála sé verið að færa okkur aftur í tímann. Nú eiga bara þeir efnameiri að geta ferðast á milli landa eða átt bíl. Hinir eiga að halda sig heima hjá sér og nota almenningssamgöngur.