153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[17:32]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna. Fyrst varðandi það sem hv. þingmaður nefndi um losunarheimildir, þær voru einfaldlega miklu ódýrari árið 2012 og það hefur þróast í allt aðra átt en gert var ráð fyrir í upphafi. Það var sömuleiðis hætt við að láta ETS-losunarheimildir gilda fyrir flug út úr Evrópu þannig að þær gilda bara um flug innan Evrópu og það er fyrst og fremst það sem skekkir samkeppnisstöðuna, sem versnar enn vegna hárra verða á losunarheimildum. Verðið var í upphafi sex evrur á tonn og er komið upp í 100 evrur á tonn. Það mál hefur því þróast í allt aðra átt en gert var ráð fyrir 2012.

Hv. þingmaður nefndi hagsmunamat og hagsmunagæslu. Mér þykir alltaf dálítið áhugavert þegar fjallað er um landbúnaðinn og rökin sem hv. þingmaður nefnir að ég og fleiri komi með, að þetta séu hlutir sem við getum gert sjálf, að við viljum breyta landbúnaðarkerfinu og svo sé það ekki gert og allt þetta. En þá má einhvern veginn lesa út úr því þann tón að landbúnaðarstefna Evrópusambandsins og landbúnaður innan Evrópulandanna sé mjög framúrskarandi eða mjög frjáls, hann sé ekki niðurgreiddur eða, sem ég hef skynjað sem helstu gagnrýni hv. þingmanns á kerfið hér, að kerfið sé einhvern veginn með allt öðrum hætti innan Evrópusambandsins. Varla er hv. þingmaður að halda því fram að sjávarútvegur og sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins sé til mikillar eftirbreytni og sé betri en sú sem við rekum hér.

Varðandi hagsmunagæslu í flugmálinu svokallaða þá höfum við tekið það mál upp á ársfundum EES, forsætisráðherra hefur tekið það upp við sína kollega, ég hef tekið það upp við einhverja tugi kollega á tugum funda. Sömuleiðis hefur innviðaráðherra tekið það upp við sína kollega sem og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Og þegar fjallað er um þessa tvo turna, NATO og ESB, þá nefndi hv. þingmaður einmitt helst þau atriði sem við fáum í gegnum EES-samninginn, um mikilvægi þess að vinna náið með Evrópusambandinu.