framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans og margt það sem mér er ljúft og skylt að taka undir. En ég staldraði aðeins við umfjöllun hv. þingmanns um lýðræðishalla. Þegar ég heyri orðið lýðræðishalli í þessari umræðu þá dettur mér auðvitað í hug vaxandi lýðræðishalli innan Evrópusambandsins sem hefur verið harðlega gagnrýndur, ekki síst af smærri ríkjum þar inni vegna breytinga á ákvarðanatökuforminu. Mig langar að spyrja, hv. þingmaður skautaði ansi létt fram hjá því álitaefni, að ég tel, hvort hv. þingmaður telji að meintur lýðræðishalli yrði réttur af með fimm eða sex þingmönnum af yfir 700 og hvort það sé fullnægjandi aðkoma, eins og orð hans gáfu til kynna, og það í skiptum fyrir aðgang að dýrmætustu auðlind okkar, fiskimiðunum sem við höfum sannarlega barist fyrir með kjafti og klóm.