Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[17:53]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir þessa skemmtilegu spurningu um lýðræðishallann í Evrópusambandinu. Það er mér ákaflega ánægjulegt að fá að ræða hér í þessum sal um þessi mál. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að Evrópusambandið hefur verið að eiga við þetta ákveðna viðfangsefni ákaflega lengi og það hafa auðvitað verið stigin mjög stór skref, eins og hv. þingmaður þekkir ágætlega, í þá átt að leiðrétta hinn svokallaða lýðræðishalla, m.a. með auknum áhrifum Evrópuþingsins, sem er auðvitað kosið beinni kosningu. Þegar talað er um þessa sex þingmenn sem gera mætti ráð fyrir að við Íslendingar fengjum á Evrópuþinginu, ef við tökum mið af þeim fjölda þingmanna sem t.d. Malta hefur, sem er álíka fjölmennt ríki og við, þá er það auðvitað þannig að þeir myndu ekki endilega starfa sem fulltrúar lands og þjóðar heldur í flokkahópum á Evrópuþinginu. Ákvarðanirnar sem Evrópusambandið tekur eru auðvitað teknar mjög víða. Eins og hv. þingmaður þekkir örugglega vel er þetta mjög umfangsmikið kerfi og á langflestum vígstöðvum má rekja ákvarðanatökukeðju til lýðræðislegra kjörinna fulltrúa. Í ráðherraráðinu eru það auðvitað fulltrúar ríkjanna sem hafa sitt umboð í krafti kjósenda og þingmenn á Evrópuþinginu eru kosnir beinni kosningu o.s.frv. Mig langar til að koma inn á sjávarútvegsmálin og ég mun gera það þegar ég kem upp á eftir.