Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[17:56]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er hreinlega ósammála því að margt hafi verið gert til þess að laga það sem þessi gagnrýni snýr að, varðandi lýðræðishallann. Þvert á móti hefur þróunin áfram verið mjög áköf í þá átt að lýðræðishallinn hefur aukist. Varðandi aðkomu kjósenda þá er það hreinlega svo að framkvæmdastjórnin er langvaldamest og það eru auðvitað engir kjósendur sem koma að því.

Mig langar hins vegar að beina sjónum hv. þingmanns að öðru. Hv. þingmaður segir að ekki séu fullnægjandi rök fyrir því að við einskorðum okkur við EES-samstarfið. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort staða okkar í alþjóðlegum samanburði, ekki síst við löndin í fyrirheitna landinu, ESB, séu ekki fullnægjandi rök. Ég get bara nefnt sem dæmi, þetta hefur nú komið fram í máli mínu fyrr í dag, að hagvöxtur er langt umfram það sem gerist í ESB-ríkjunum, mestur jöfnuður, minnst fátækt, hæstu launin, langmestur kaupmáttur og kaupmáttaraukning, á meðan kaupmáttarrýrnun hefur átt sér stað innan ESB hvert sem litið er, en ekki síst allsherjarsamanburður á lífskjörum. Það er nú svo að Sameinuðu þjóðirnar taka út á hverju ári og gefa út skýrslu þar sem borin eru saman lífskjör milli landa og í síðustu skýrslu er lýst yfir miklum áhyggjum af því að lífskjör fari versnandi í heiminum. En þau fara batnandi á Íslandi, þar sitjum við í þriðja sæti. Og hverjir skyldu vera þar á undan okkur? Jú, það eru einmitt Noregur og Sviss. Er ekki bara kominn tími til þess að ESB-sinnar viðurkenni að það eru tilfinningarök umfram allt annað sem hníga til þess að við sækjum um aðild að ESB fremur en efnahagsleg rök eða nokkuð annað?