Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[18:33]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum kannski komin vel út í umræðu sem á betur heima á öðrum vettvangi, um þjóðaratkvæðagreiðslur og gildi þeirra. En ég vildi stuttlega bregðast við og segja á móti að í þessu sambandi sérstaklega varðaði þessi staða á þessum tíma ekki beinlínis það að ganga inn í Evrópusambandið og heldur ekki að taka ákvörðun um hvort það ætti að hefja viðræður eða ekki, heldur að halda áfram með eitthvað sem var klárað og síðan var lokaákvörðun eftir. Það hefði mögulega mátt færa þau rök að þeim aðila sem vill ekki ganga í Evrópusambandið og er mjög skeptískur á það væri kannski treystandi til að gæta okkar hagsmuna í slíkum samningaviðræðum, svona til að sýna hina hliðina á peningnum. Það er kannski ekki alveg sjálfgefið að þó að þú sért á móti einhverri ákvörðun þá getir þú ekki unnið samkvæmt henni og jafnvel séð hana frá aðeins öðru sjónarhorni en einhver sem er algerlega heitur fyrir málinu.