Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[18:35]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Takk fyrir þessa fínu umræðu, hv. þingmaður. Við höfum því miður reynslu af því að sækja um aðild að Evrópusambandinu þar sem hluti ríkisstjórnar var á móti því að ganga í Evrópusambandið og það fór ekki vel. Ég held að þegar slíkt skref er stigið þurfi að vera fullur einhugur innan þeirrar ríkisstjórnar sem færi í slíka vegferð. Ég vil líka árétta að það hefur verið skoðun þess flokks sem ég er fulltrúi fyrir hér inni í dag að það yrði ekki farið í aðra slíka vegferð fyrr en eftir að þjóðin yrði spurð að því hvort áhugi væri fyrir því af hennar hálfu.