Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[18:35]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Mig langaði bara að koma hingað upp til að þakka fyrir umræðuna í dag, þakka öllum þeim þingmönnum sem tóku þátt í henni. Andsvörin og umræðan almennt var málefnaleg og ótrúlega margt sem kom hér upp. Ég held að þetta fyrirkomulag sé með besta móti og gagnlegt fyrir mig og vonandi gagnlegt fyrir þingheim og fyrir málin, að við séum að taka þetta fyrir með þessum hætti. Ég þakka fyrir góðar umræður og góðan dag hér í dag.