Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2022.

647. mál
[19:25]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir framsöguna. Það vekur helst athygli mína, og er kannski skylt því sem ég hef spurt aðra um hér í kvöld og helgast kannski af því hvar hugurinn er akkúrat núna, að það er ítrekað rætt um að fríverslunarsamningur EFTA við Úkraínu sé í endurskoðun en hins vegar kemur ekkert fram um framgang þess máls, nema á einum stað er sagt að það sé fyrirhugað að auka gagnsæi um framgang þessarar endurskoðunar. Kannski sérstaklega í ljósi þess að maður finnur þá skemmtilegu staðreynd á netinu að þessi fríverslunarsamningur var undirritaður í Reykjavík 24. júní 2010 þá stendur þetta okkur pínu nærri að þessu leyti og að sjálfsögðu líka sem aðilar að þessu samstarfi og líka í ljósi krísunnar sem er þarna uppi. Ég er pínu forvitinn um hvernig þessi endurskoðun gengur og tímarammann á henni og svo kannski líka hvað hún skiptir miklu máli, hvort þessi opnun hjá Evrópusambandinu sé nóg eða hvort þetta sé atriði sem er mikilvægt fyrir Úkraínubúa sjálfa.