Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2022.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Halldóri Auðar Svanssyni kærlega fyrir hans andsvar og tek undir einmitt mikilvægi endurskoðunar á fríverslunarsamningi við Úkraínu og gagnsæi við það. Þetta kom til tals á fundum nefndarinnar í vinnunni á síðasta ári, sérstaklega eftir innrás Rússa í Úkraínu. Það er mikill vilji innan EFTA-ríkjanna að koma til móts við Úkraínu eins og mögulegt er. Eins og sakir standa núna, eins og við vitum, þá hefur Úkraína verið í miklum brennidepli og margir beint sjónum sínum þangað og velt fyrir sér hvað hægt er að gera til þess að aðstoða þá fjárhagslega og efnahagslega og ekki síður líka í þessu stríði sem stendur yfir. Varðandi vinnuna sem hv. þingmaður spurði út í, hvar hún væri stödd og hvenær henni væri áætlað að ljúka, hef ég ekki upplýsingar um. En ég skal bara kynna mér það og koma þeim upplýsingum til hv. þingmanns. Ég ítreka hér mikilvægi þess að hjálpa þar sem hægt er að aðstoða, það er afar mikilvægt og það er okkar skylda þegar svona bjátar á, eins og stríðið í Úkraínu, að allar þjóðir sem hendi geta lyft geri það eins og kostur er.