153. löggjafarþing — 67. fundur, 22. feb. 2023.
mannabreytingar í nefnd.
Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Pírata um mannaskipti í nefnd, samanber 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, en hún verði varamaður í sömu nefnd í stað Andrésar Inga Jónssonar.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn gerir athugasemd.