153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

Störf þingsins.

[15:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í gær var opinn fundur hjá efnahags- og viðskiptanefnd með seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra þar sem rædd voru áhrif verðbólgu og vaxta á heimili og fyrirtæki í landinu. Þar kom m.a. fram að þrátt fyrir alvarlega stöðu þá hafa skuldir heimila og fyrirtækja ekki aukist. Ekki eru nein merki um að vanskil séu að aukast. Mikil spenna er í hagkerfinu og til að slá á þá þenslu hefur Seðlabankinn fá önnur úrræði en að hækka vexti. Brýnasta verkefni okkar allra í dag er að ná niður verðbólgunni, þeim forna fjanda. Til að það megi takast er brýnt að ljúka kjarasamningum á vinnumarkaði. Nú er svo komið að búið er að ljúka samningum við um 80% almenna markaðarins. Þeir samningar sem gerðir voru í desember voru allir samþykktir með miklum meiri hluta. Það tókst að ljúka samningum við sjómenn, stétt sem hafði verið samningslaus í nokkur ár. Því er það þyngra en tárum taki að hér sé eitt stéttarfélag við það að lama íslenskt samfélag og valda ómældum efnahagsskaða.

Talað er um að um helgina geti skapast hér almannavarnaástand, þar sem hundruð ferðamanna munu verða á götunni. Búið er að virkja neyðarnúmer fyrir ferðamenn. Álit á Íslandi sem áfangastað ferðamanna mun bíða hnekki. Ég er ekki viss um að fólk sem hafði pantað sér ferð til að eyða hér jafnvel hveitibrauðsdögum sínum hafi séð fyrir að það þyrfti hugsanlega að gista í fjöldahjálparstöð.

Staðan sem nú er uppi er mikil vonbrigði. Við höfum séð þessa atburðarás áður og það á síðustu öld, því 1990 var að hringja. Þá var staðan þannig að við vorum föst í spíral ósjálfbærra launahækkana sem brunnu upp með gengisfellingum og verðbólgu.