153. löggjafarþing — 67. fundur,  22. feb. 2023.

Störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Að lokinni vel heppnaðri kjördæmaviku er kominn tími á eina af mínum reglulegu ræðum um jöfnun raforkukostnaðar. Í landinu eru tvær gjaldskrár vegna dreifingar rafmagns; dreifbýlisverð og þéttbýlisverð. Íbúar og fyrirtæki í dreifbýli borga umtalsvert meira fyrir dreifingu raforku en þéttbýlisbúar. Ríkisstjórnin hefur gert vel í að jafna dreifikostnaðinn undanfarin misseri en samt sem áður er innbyggð óvissa í fyrirkomulagið eins og það er. Bæði almenna jöfnunin og samningar við garðyrkjubændur byggja á skiptingu á ákveðinni fjárveitingu milli þeirra sem njóta jöfnunarinnar. Þannig er enginn hvati til að fjölga notendum í dreifbýli og má raunar segja að þvert á móti sé skammtímahvati til að fækka notendum. Ef aftur á móti væri litið á heildarmyndina og til langtímasjónarmiða væri það allra hagur að fjölga notendum raforku í dreifbýli því að þá skiptist dreifikostnaðurinn á fleiri notendur, verðið gæti lækkað og um leið þörfin minnkað fyrir jöfnunargreiðslur úr ríkissjóði. Stjórnvöld verða því að halda áfram að leita betri og fyrirsjáanlegri lausna við jöfnun dreifikostnaðar raforku, hvort sem er til almennra notenda eða í stuðningi við orkufreka framleiðslu eins og garðyrkju. Í því sambandi er rétt að rifja upp að samkvæmt stjórnarsáttmála er ætlunin að auka grænmetisframleiðslu með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar. Dreifikerfi í jörð, þrífösun rafmagns og fyrirsjáanleiki í dreifikostnaði raforku eru brýnustu hagsmunamálin fyrir fyrirtækin sem staðsett eru í dreifbýlinu, jafnt fyrirtæki í ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu og á öðrum sviðum. Nýsköpun, orkuskipti, nýliðun og öll framtíð dreifðra byggða er háð því að orka fáist, hún sé afhent á öruggan hátt og á samkeppnishæfu verði.